-

SunnuDjass / Hljómsveitin Gumbo og Steini

Apr 2, 2017 @ 8:00 pm  —  Apr 2, 2017 @ 11:00pm

ENGLISH BELOW – FREE ENTRY

Hljómsveitin Gumbo og Steini var, eins og lesa mætti úr nafninu, sett saman til að heiðra matar-, jafnt og tónlistarhefð suðurríkja Bandaríkjanna, og þá sérstaklega arfleifð New Orleans og nágrannabyggða, en gumbo er ólgandi bragðmikil baunakássa með kjöti og hrísgrjónum sem er þar í hávegum höfð. Bandið ber fram ólgandi bragðmikla kássu af jarðarfararmarseringarlúðrasveitadanstónlist í bland við hæggengari tónsmíðar Ellingtons og annarra frá árdögum djassins.

Tregi og gáski kallast á í þessari dagskrá og lúðrasveitin er ýmist samstillt útsett eða hver upp á móti öðrum í fjölradda spuna, en á básúnu leikur Samúel Jón Samúelsson, á trompet Eiríkur Orri Ólafsson og á saxófóna og klarinett Haukur Gröndal. Með þeim bröltir rytmasveit skipuð Andra Ólafssyni á kontrabassa og Helga Svavari Helgasyni trymbli.

Á boðstólum er að vanda ljúffengur matur af barseðli auk valinkunna bjórtegunda sem bruggaðar eru á staðnum og er eldhús Bryggjunnar opið til 22.00.

Látið ykkur ekki vanta! Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir í mjúka lendingu eftir helgina.

/

Sunday night jazz at Bryggjan Brugghús next sunday. Performing is band Gumbo and Steini. Performing are Samúel Jón Samúelsson, Eiríkur Orri Ólafsson, Haukur Gröndal, Andri Ólafsson and Svavar Helgason.

Hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.

Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!

Entry free like usually.



Event Venue


  • Venue
    Bryggjan Brugghús
  • About
    We are a bar, bistro and brewery in the popular Grandi area by Reykjavík Harbor. Drop by for a tour of our brewery a good meal or just some of our otherworldly beer that we of-course brew on site. Kitchen open from 11:30 to 22:30 Thu-Sat and 22:00 Sun-W
  • Email
    booking@bryggjanbrugghus.is
  • Follow On

Event Details