SunnuDjass / Kvartett Óskars Guðjónssonar
Óskar Guðjónsson heldur djassdaginn hátíðlegan á SunnuDjassi Bryggjunnar Brugghús. Daginn eftir, mánudaginn 1. maí, alþjóðlegur baráttudagur verkafólks og því víðsvegar frí. Það er því vel í lagt að hlýða á ómþýðan djass og sötra á bragðgóðum veigum fram eftir kvöldi.
Óskar mun klæða standarda frá öðrum, þriðja og fjórða áratug síðustu aldar í búning bandsins, samt ekki dýrabúning þótt Piparkökusöngurinn gæti flotið með. Leikgleðin verður allsráðandi í bland við innri átök hljómsveitarmeðlima, en þeir eru Andri Ólafsson bassaleikari, Magnús Trygvason Eliassen sem trommar og Tómas Jónsson píanóleikari.
Leikar hefjast venju samkvæmt klukkan 20.00. Á boðstólum er að vanda ljúffengur matur af barseðli auk valinkunna bjórtegunda sem bruggaðar eru á staðnum og er eldhús Bryggjunnar opið til 22.00.
Látið ykkur ekki vanta! Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir í mjúka lendingu eftir helgina.
/
Sunday night jazz at Bryggjan Brugghús next sunday. Saxophone player Óskar Guðjónsson will be celebrayting the day of jazz at Bryggjan Brugghús. Performing with Óskar are Andri Ólafsson on bass, Magnús Trygvason Eliassen on drumms and Tómas Jónsson on piano.
1st of May is a public holiday in Iceland so guests are encouraged to sit back, relax and listen to some mellifluous jazz while sipping on some delicious craft beer.
The music starts at 20.00 and hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.
Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!
Entry free like usually.
Previous Event Next Event