Finnland – Ísland
Sep 2, 2017 @ 3:15 pm — Sep 2, 2017 @ 6:00pm
Það er stórleikur hjá íslenska landsliðinu á laugardaginn og í tilefni af því hendum við upp risaskjá á Bryggjunni Brugghús og höfum líf og fjör. Kíkið endilega við og fáið ykkur smá að borða og nokkra ískalda beint af tönkunum í Brugghúsinu.
Leikurinn fer fram í Tampere í Finnlandi og er liður í undankeppni HM 2018 og ljóst að íslenska landsliðið þarf hagstæð úrslit til að eiga möguleika á því að komast áfram. Þess vegna leggjum við okkar af mörkum og gefum frían bjór fyrir hvert mark sem Ísland skorar í leiknum.
Áfram Ísland, HÚH.
Previous Event Next Event