SunnuDjass – Gumbó og Steini
Hljómsveitin Gúmbó og Steini var, eins og lesa mætti úr nafninu, sett saman til að heiðra tónlistarhefð suðurríkja Bandaríkjanna, og þá sérstaklega arfleifð New Orleans og nágrannabyggða, en gumbo er ólgandi bragðmikil baunakássa með kjöti og hrísgrjónum sem er þar í hávegum höfð.
Bandið ber fram ólgandi kássu af jarðarfararmarseringarlúðrasveitadanstónlist í bland við hæggengari tónsmíðar Ellingtons og annarra frá árdögum djassins. Tregi og gáski kallast á í þessari dagskrá og lúðrasveitin er ýmist samstillt útsett eða hver upp á móti öðrum í fjölradda spuna.
Á básúnu leikur Samúel Jón Samúelsson, Eiríkur Orri Ólafsson á trompet, Haukur Gröndal á saxófóna og klarinett. Með þeim bröltir rytmasveit skipuð Andra Ólafssyni á kontrabassa og Helga Svavari Helgasyni trymbli.
Previous Event Next Event