Eusebio pubquiz á Húrra
May 30, 2017 @ 8:30 pm — May 30, 2017 @ 11:00pm
Hlaðvarpsþátturinn Eusebio stendur fyrir léttri og skemmtilegri spurningakeppni á Húrra, þriðjudagskvöldið 30. maí.
Fótbolti verður því í fyrirrúmi á þessum fornfræga skemmtistað, mögulega í fyrsta skipti frá upphafi.
Það verða þau Hrafnhildur Agnarsdóttir, Örvar Smárason og Björn Teitsson sem sjá um að setja veisluna saman – þau sömu og hafa einmitt séð um að blaðra um fótbolta í Eusebio, fótboltaþætti Alvarpsins.
Vegleg verðlaun í boði, svelljökulhrímaðir á hagstæðu verði. Gæti þetta verið betra?
Í hverju liði mega vera allt að fjórir keppendur!
Previous Event Next Event