Úlfur Úlfur á Húrra
Jun 3, 2017 @ 9:00 pm — Jun 4, 2017 @ 1:00am
ÚLFUR ÚLFUR heldur tónleika á Húrra laugardaginn 3. júní. Hljómsveitin gaf út plötuna HEFNIÐ OKKAR fyrir örfáum vikum og munu fjölmörg lög af henni hljóma í fyrsta sinn á sviði þetta kvöldið. Eldra efni verður þó einnig í hávegum haft og mun sveitin jafnvel taka við óskalögum ef nógu margir hrópa samtaka.
Um upphitun sjá ALEXANDER JARL og HUGINN.
Geisladiskar og glænýr hljómsveitarvarningur verður til sölu á staðnum.
Hús opnar kl. 21:00. Tónleikar hefjast um 23:00.
Miðaverð: 2000 kr.
Previous Event Next Event