-

Líf í Stevie: Heiðurstónleikar á Húrra

Jun 8, 2017 @ 8:00 pm  —  Jun 8, 2017 @ 11:00pm

Í tilefni þriðja hjónabands Stevie Wonder, en hann gengur í það heilaga núna í júní, verða haldnir tónleikar honum til heiðurs á Húrra þ. 8. júní. Hljómsveitina skipar enda að mestu heiðursfólk: Elín, Elísabet og Sigríður Eyþórsdætur, Eyþór Gunnarsson, Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Karl Teague.

Efnisskráin samanstendur af uppáhaldslögum hljómsveitarmeðlima, sem vill svo til að eru flest af plötum sem Wonder gaf út á árunum 1972-1976.

Húsið opnar kl. 20, tónleikarnir hefjast kl. 21 og það kostar 3000 kr. inn.



Event Venue


  • Venue
    Húrra
  • About
    Reykjavík's premier live music venue and the place to have a great night out. Voted "Best for live music" and "Best All-Around Bar" in The Reykjavík Grapevine 2015, 2016 & 2017. Booking inquiries: booking@hurra.is
  • Email
    booking@hurra.is
  • Follow On

Event Details