-

One Week Wonder & Ceasetone á Húrra

Jun 13, 2017 @ 8:00 pm  —  Jun 13, 2017 @ 10:00pm

One Week Wonder er hljómsveit stofnuð árið 2014 þegar meðlimir þess voru í hljóðupptökunámi í Berlín. Sveitin spilar draumkennt pop hefur verið líkt við hljómsveitir á borð við Pink Floyd og Air.

Hljómsveitin hefur átt góðu gengi að fagna upp á síðkastið en ásamt því að fá verðlaun fyrir myndband ársins á nýafstöðnum íslensku tónlistarverðlaunum hefur lagið Angel eyes fengið góða spilun á útvarpsstöðvum og náði t.a.m. öðru sæti á vinsældarlista rásar tvö.

Þá er sveitin nýkomin heim frá Texas þar sem þeir komu fram á South by south west tónlistarhátíðinni við góðar undirtektir tónleikagesta. Um þessar mundir sitja drengirnir með bogin bök yfir hljóðfærum sínum og hnoða saman ný lög og fáum við sjálfsagt að heyra brot úr þeim þetta kvöld.

____________________________________________

Ceasetone þarf vart að kynna enda löngu búinn að sýna sig og sanna í íslensku tónlistarlífi með öflugum tónleikaframkomum og metnaðarfullum lagasmíðum byggðum á litríkum hljóðheimi þar sem elektrónísk og akústísk tónlist fellur saman í eitt.
Seinustu tvö ár hafa verið afkastamikil fyrir Ceasetone, sigur í ATP unsigned talent competition á vegum Bedroom Community 2015, framkoma á SXSW í texas ásamt því að vera fulltrúar IMX á Reykjavík Calling viðburðum í Boston, Chicago og Toronto og útgáfa fyrstu breiðskífunnar “Two Strangers” sem tróndi á toppi hinna ýmsu lista yfir bestu plötur ársins 2016 ásamt því að vera tilnefnd rokkplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Framundan er heljarinnar ár fyrir Ceasetone og margt spennandi rétt handan við hornið.

Í skiptum fyrir lítinn 1500 kall lofum við þér frábærum tónleikum og skemmtilegu kvöldi.



Event Venue


  • Venue
    Húrra
  • About
    Reykjavík's premier live music venue and the place to have a great night out. Voted "Best for live music" and "Best All-Around Bar" in The Reykjavík Grapevine 2015, 2016 & 2017. Booking inquiries: booking@hurra.is
  • Email
    booking@hurra.is
  • Follow On

Event Details