Stórborgarquiz á Húrra
Samtök um bíllausan lífsstíl ætla að bjóða til veislu, fimmtudagskvöldið 12. apríl. Á dagskrá er Stórborgarpubquiz þar sem gestir og gangandi geta tekið þátt í skemmtilegri spurningakeppni um Reykjavík, um stórborgir, um borgarrýmið sem umkringir okkur á degi hverjum.
Hvar í Reykjavík var verslunin King Kong?
Hvað heitir lókal-pöbbinn í Grafarvogi?
Hvað kostar grillaður kjúlli í Melabúðinni?
Hvaða þrjár götur mætast á Drekasvæðinu?
Ef þú hefur hugmynd um þessi svör er þetta keppnin fyrir þig! Glæsileg verðlaun í boði, bjór frá Húrra, leynivinningar frá Reiðhjólaversluninni Berlín, Strætó gefur mánaðarkort (!) og hver veit nema Reykjavíkurborg bjóði upp á óvænt verðlaun.
Í leiðinni ætla Samtök um bíllausan lífsstíl að kjósa sér nýjan formann, en allt fólk sem mætir hefur kjörgengi og atkvæðisrétt.
Happy Hour-verð á barnum á meðan keppnin stendur yfir. Þetta getur ekki klikkað!
Frambjóðendur til borgarstjórnarkosninga eru sérstaklega velkomnir og eins gott fyrir þá að standa sig.
Tveir keppendur saman í liði. Það verður myndagetraun, spurningar og tóndæmi. Endalaust stuð! Og hver veit nema skemmtiatriði bætist við 😉
Sjáumst!
Previous Event Next Event