-

Formaðurinn kynnir: Hin Hliðin.

Mar 11, 2015 @ 9:30 pm  —  Mar 12, 2015 @ 1:00am

Ný mánaðarlega kvöld á Kaffibarnum þar sem landsþekktir plötsnúðar, tónlistarmenn, hönnuðir og hipsterar sýna á sér hina hliðina.

Leikreglurnar eru eftirfarandi:

2 leikmenn + gestir.

1) Plötusnúður kvöldsins spilar tónlist úr safni sínu sem sýnir aðra hlið á viðkomandi en almenningur þekkir.

1,5) Fyrstu gestum kvöldsins verður boðið upp á kverkvætandi veigar á meðan birgðir endast.

2) Myndskreytari kvöldsins gefur tónlistinni myndrænan leikvöll. Myndefni verið teiknað eða sérvalið úr einkasafni listmannsins.

3) Bæði plötusnúður og myndskreytari skora svo á kollega úr hvorri starfsgrein til að taka að sér framkvæmd næsta kvölds.

4) Umsjón kvöldanna er í höndum formannsins (og er hann einnig sérlegur verndari og ábyrgðarmaður).

5) Sigurvegari kvöldsins er síðan sérhver gestur er hefur gaman af.

Á þessu fyrsta kvöldi seríunnar er það að sjálfsögðu Formaðurinn sjálfur; DJ Kári sem sýnir hina hliðina á sér.

Myndskreytingin er síðan unnin af Davíð Erni Halldórsyni. Davíð þarf vart að kynna fyrir þá sem hafa komið á gleðiheimili, eða í samkomu- eða listhús okkar ástsæla miðbæjar seinasta áratuginn. Það væru engu logið ef sagt væri; ” Hann hefur einfaldlega haft áhrif á það hvernig heimur okkar lítur úr”.



Event Venue


  • Venue
    Kaffibarinn
  • About
    It's a page!
  • Email
    kaffibar@gmail.com
  • Follow On

Event Details