Möller Records á Húrra
Möller Records Night at Húrra – Möller Kvöld á Húrra – 29. mars, 2018. 1500 krónur inn og glaðningur fylgir með!
21:00 BistroBoy
Bistro Boy er hliðarsjálf Frosta Jónssonar en hann hefur verið að gutla í raftónlist í allmörg ár og gefið út nokkrar plötur, singla og remix. https://www.facebook.com/bistroboymusic/
21:30 Futuregrapher
Árni Grétar Jóhannsson er Futuregrapher en hann er jafnframt einn af stofnendum Möller Records. Það eru fáir jafn iðnir við að gefa út og flytja tónlist og Árni Grétar og er þekktur fyrir að koma sífellt á óvart í flutningi á tónlistinni sinni. https://www.facebook.com/Futuregrapher/
22:00 Chamileo
Chamileo er listamannsnafn Luis Diogo en ný plata er væntanleg með honum í mars. Tónlist Chamileo má lýsa sem lowtempo techno music en plötuna vann hann samhliða námi við SAE Institute í Hollandi. https://www.facebook.com/chamileomusic/
22:30 Andartak
Andartak er Arnór Kári Egilsson en hann býr til sýrukennt tekknó og hefur getið sér gott orð fyrir lifandi flutning. Hann gaf út plötuna Electrolysis í byrjun mars en platan er tekin upp live.
https://www.facebook.com/Andartak.Electro/
23:15 Subminimal
Subminimal er hliðarsjálf Tjörva Óskarssonar. Subminimal er þekktur fyrir hárbeitta taktsmíðar og bylmingsbassa (drum & bass) og kraftmikinn lifandi flutning. https://www.facebook.com/subminimal
Previous Event Next Event