Tequila körfuboltamót Priksins!
Aug 10, 2013 @ 3:00 pm
Þá er komið að því! Tequila körfuboltamóti Priksins verður haldið með pompi og prakt næstkomandi laugardag, 10 ágúst! Tveir og tveir eru í liði og frjáls skráning er á mótið.
Reglurnar eru einfaldar, villa á leikmann=Tequila skot, ef hvorugt lið hefur skorað stig á 2 mínútum=Tequila skot, ef dómarinn sér ó-íþróttamannslegt athæfi=Tequila skot, tequila, tequila, tequila! Hver leikur er uppí tíu stig og dómarinn er enginn annar en Gísli Pálmi!
Skráning fer fram í formi skilaboða til okkar hérna á facebook eða á bokanir@prikid.is
Veglegir vinningar eru í boði, en þeir verða kynntir á mótinu sjálfu.
Vonum eftir besta veðri og hittumst heil!
Previous Event Next Event