Spilakvöld á Gauknum!
Mar 22, 2015 @ 7:00 pm — Mar 23, 2015 @ 1:00am
Sunnudagskvöldið 22.mars verður spilakvöld á Gauknum!
Áherslan er á borðspil en einnig er hægt að spila tölvuleiki á stórum tjöldum.
Á staðnum verða ýmsir tölvuleikir, ágætis safn af borðspilum, pílukast og síðast en ekki síst pókerborð og chips fyrir þá sem vilja skella sér í póker!
Öllum er velkomið að taka með sér borðspil eða tölvuleiki til að spila (á eigin ábyrgð).
Við leyfum einnig gestum að koma með snakk eða nammi með sér, svo lengi sem drykkir eru keyptir á barnum 🙂
Það verður HAPPY HOUR milli 19 og 22:
Stór Thule á 500 kr
Vínglas á 700 kr
Skot dagsins á 500 kr
Sjáumst eldhress, hlustum á góða tónlist, drekkum bjór og spilum frá okkur allt vit!
Previous Event Next Event