-

27 ára (rokkstjörnu) AFMÆLI BJÓRSINS – Bjór á 270 kr!

Mar 1, 2016 @ 8:00 pm

Þann 1. mars árið 1989 var bjórinn leyfður á Íslandi eftir áratuga langt bann. Þegar Gaukurinn (þá Gaukur á Stöng) var opnaður árið 1983 var ekki leyfilegt að selja bjór og seldi því staðurinn svokallað bjórlíki (brennivín og vodka blandað í pilsner) fyrstu árin. Þann 1. mars næstkomandi verða liðin 27 ár síðan bjórinn var leyfður á ný, og ætlum við á Gauknum að halda upp á þetta rokkstjörnu-afmæli bjórsins með góðu partíi.

Dagskráin er á þessa leið:

20:00 – 21:00 ENGINN BJÓR seldur á barnum! Bjórlíki selt í staðinn, á 270 krónur glasið.

Klukkan 21:00 stígur Jakob Frímann Magnússon miðbæjarstjóri á svið, segir gestum örlítið frá þessum merka viðburði og opnar fyrir bjórdælurnar með pompi og prakt!
Þá verður stór Thule á aðeins 270 krónur meðan birgðir endast!

Um leið og bjórdælurnar fara í gang hefst tónlistardagskrá á sviðinu. Fram koma:
Mc Bjór og Bland
Andrea Gylfadóttir og Benjamín Náttmörður

Og svo KARAOKE til lokunar – því þriðjudagar eru Karaoke-dagar á Gauknum!

Ljósmynd: Gaui H Pic



Event Venue


  • Venue
    Gaukurinn
  • About
    Gaukurinn er tónleikastaður og bar í hjarta Reykjavíkurborgar. Nýlegar breytingar á staðnum hafa vakið mikla lukku - endilega komdu í heimsókn!
  • Email
    rekstrarstjori@gamligaukurinn.is
  • Follow On

Event Details