Útgáfutónleikar Dr. Spock – Leður á Húrra.
Það hefur löngum verið sagt að febrúar sé með allra skemmtilegustu mánuðum og í ár verður þar engin breyting á. Dr. Spock þeysast fram á vínylvöllinn með stórkostlegan óð til gleðinnar sem ber nafnið Leður. Guli hanskinn er aldrei langt undan og sækir frekar á ef eitthvað er. En þeir láta ekki þar við sitja heldur hlaða í útgáfutónleika á Húrra á útgáfudaginn 16. febrúar nk. Dr. Spock er með allra skemmtilegustu tónleikasveitum og verður ekkert sparað og öllu til tjaldað á Húrra þetta kvöld.
Miðasala er hafin á tix.is en þar má einnig tryggja sér vínylinn á sérstökum kostakjörum. Húrra er að vanda opið frá kl. 17 en dagskrá hefst kl. 21:00, og mun DJ Matti sjá um að hita upp gesti þangað til að Dr. Spock stígur á svið. Stundvísir gestir fá glaðning á barnum.
Nefndin
Previous Event Next Event